Þórhallur: Drykkja foreldra á jólum eitt það versta sem hægt er að gera börnunum

„Það versta sem við gerum börnunum okkar er drykkja sem fylgir oft hátíðisdögum,“ segir Þórhallur Heimisson, prestur sem búsettur er í Uppsölum í Svíþjóð um þessar mundir.

Þórhallur er í áhugaverðu viðtali á vefnum Lifðu núna þar sem hann tjáir sig meðal annars um jólin og streituna sem fylgir hinu daglega lífi. Í viðtalinu færir hann foreldrum einnig mikilvæg skilaboð sem eiga jafnt við í aðdraganda jóla og á öðrum tímum ársins.

„Jólin eru hátíð barnanna svo dæmi sé tekið. Besta jólagjöfin þeirra er ekki tölva eða nýtt sjónvarp heldur foreldrar sem gefa neyslunni frí og láta alveg vera að veita áfengi í öllu hátíðarborðhaldinu. Drykkja foreldra sem fer úr böndum um jól er eitt það versta sem börnin upplifa,“ segir Þórhallur meðal annars í viðtalinu.

Í viðtalinu talar hann einnig um skilnaði, neysluhyggju og slæmt slys sem hann varð fyrir á síðasta ári.