Þórgunnur varð fyrir óvenjulegri árás þegar hún fór út að halupa: „En þá sé ég skugga koma aftan að mér“

Þór­gunnur Torfa­dóttir, sviðs­stjóri á Horna­firði, lenti heldur betur í óvenjulegum aðstæðum í dag þegar hún var úti að skokka. Brand­ugla réðst nefnilega í­trekað að henni. Fréttablaðið fjallar um málið.

„Ég var úti að hlaupa og akkúrat að taka smá tempóhlaup, var að reyna á mig. Þá flýgur fugl á móti mér og ég hugsa: Ansi er þetta lág­fleygur mávur,“ segir Þór­gunnur og bætir við: „Svo fer hann að hvæsa og hvæsa, lætur mjög illa. Þá sé ég að þetta er ekki mávur heldur ugla. Og svo kemur hún niður að mér aftur og aftur og hvæsir með því­líku ó­hljóðunum.“

Þór­gunnur segist hafa svarað í sömu mynt með því að öskra, hvæsa og sveifla höndum, en. Það varð til þess að uglan flaug á brott.

Sagan var þó ekki búin þar, en þegar Þór­gunnur var á heimleið sá hún skugga uglunnar aftur. „En þá sé ég skugga koma aftan að mér og hugsa: Nei, ekki þú aftur! Hljóp eins hratt og ég gat og loks gat ég losnað við hana.“

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.