Þor­grímur um góð­verk Kára: Með hjarta úr gulli og ibbar gogg - „Nýtur þess að ögra og vill þá að fólk ögri á móti“

„Kári lét mig sem sagt fá lykil að Ís­lenskri erfða­greiningu og ég mátti koma og fara þegar mér hentaði. Auk þess hafði ég að­gang að mötu­neytinu, hvort sem það var að morgni til eða í há­deginu. Allt var þetta mér að kostnaðar­lausu.“

Þetta segir rit­höfundurinn Þor­grímur Þráins­son sem fyrir rúmum ára­tug sendi Kára Stefáns­syni for­stjóra Ís­lenskrar erfða­greiningar tölvu­póst og bar upp þá ósk að fá skrif­stofu­að­stöðu til að sinna skáld­skap. Svaraði Kári að það væri sjálf­sagt. Þá er Kári þekktur fyrir að láta gott af sér leiða án þess að grobba sig af því. Þor­grímur segir:

„Ég kynntist fjölda fólks í fyrir­tækinu, man samt ekki eftir að hafa hitt kappann en rakst þó annað slagið á hann í ræktinni þar sem hann var að ibba gogg við hina og þessa á milli þess sem hann ,,tók á‘ðí“. Hann nýtur þess að ögra og vill þá að fólk ögri á móti.“

Í tvö til þrjú ár var Þor­grímur með að­stöðu í ís­lenskri erfiða­greiningu.

„Kári er höfðingi og einn mest spennandi per­sónu­leiki okkar Ís­lendinga með sterkar skoðanir og hefur hug­rekki til að viðra þær. Hann er með hjarta úr gulli og á hrós skilið,“ segir Þor­grímur og bætir við að lokum:

„Takk fyrir mig Kári og svo þú vitir það, er ,,sam­starfi“ okkar alls ekki lokið!“