Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og faðir, segir að tíu prósent nemenda í grunnskólum Reykjavíkur fái ekki heitan mat í hádeginu. Þorgrímur gerir þetta að umtalsefni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
„Draga má þá ályktun að hlutfallið sé svipað í öðrum sveitarfélögum. Líklegasta skýringin er sú að tíundi hver nemandi hafi ekki efni á því að borga fyrir heitan mat í hádeginu. Það er skólaskylda á Íslandi og því ætti að tryggja þann jöfnuð að öll börn fái hollan hádegismat. Í einhverjum tilvikum er það eina máltíð barna yfir daginn,“ segir Þorgrímur í pistli sínum.
Hann vill að Íslendingar bæti úr þessu.
„Getum við, ein fjársterkasta þjóð heims, ekki gert betur? Við getum múrað upp í skemmdir samfélagsins á tímum Covid með tuga milljarða framlagi en náum ekki að brauðfæða börn á skólatíma. Það getur brotið börn niður að narta í fátæklegt nesti á skólatíma, eða mæta með tómt nestisbox, og horfa upp á bekkjarsystkini sín fá nauðsynlegar hitaeiningar í hádeginu til að geta haldið einbeitingu út daginn,“ segir hann. Þorgrímur endar pistilinn á orðum sem eflaust margir gætu tekið undir.
„Ég vil auka mína skattbyrði ef hún tryggir það að öll börn fái að borða á skólatíma.“