Þorgrímur Þráinsson rithöfundur segir á Facebook-síðu sinni frá ævintýri sem hann lenti í í Blóðbankanum í morgun. Þeir sem þekkja Þorgrím vita að hann er mikill húmoristi og á auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar.
„Í Blóðbankanum í morgun spurði ég konuna sem saug úr mér blóðið hvort hún vildi giftast mér. Ég man ekki hvers vegna ég spurði og mundi ekki heldur á því augnbliki, að ég væri sjálfur giftur,“ segir Þorgrímur í færslu sinni og bætir við að konan sé áströlsk og hafi sagst heita Sophie. Kveðst hann þá hafa munað eftir því að hún tók líka blóð úr honum síðast þegar hann mætti í Blóðbankann.
„Pínu svekkjandi þegar hún sagðist ekki muna eftir mér. En ég jafnaði mig fljótt á því.
Ég er svo heppinn að vera með frekar þröngar æðar þannig að þetta tók sinn tíma. Svo byrjuðum við að spjalla og ég sá að samtalið vakti athygli nokkurra. Annað slagið komu athugasemdir og mér fannst eins og það væri eitthvert plott í gangi, af því Sophie er víst einhleyp. Og ekki nóg með það heldur tók hún við af annarri sem náði ekki að tengja nógu vel við æðina. Mjög plott-legt! Henni var skipt inná,“ segir hann.
Hann bætir við að Sophie hafi sagst vera að skrifa bók og hún hafi sagt honum frá söguþræðinum.
„Og hún sagðist vera búin með ¾ af sögunni. Hún vissi vitanlega ekki hver ég er, var eða verð þannig að núna er ég kominn með fínt plott. Kannski næ ég að klára á undan henni.
Því lengra sem leið á blóðgjöfina þeim mun alúðlegri varð Sophie, ekki síst þegar ég sagðist þekkja útgefanda. Undir lokin sagðist hún alveg vera til í að giftast mér. Þá mundi ég loksins eftir því að ég er giftur. En Sophie hljómaði eins og mjög góður kostur. Með beittan húmor. Synd að mega ekki gefa blóð oftar. Mig vantar aðeins inn í söguþráðinn,“ segir hann.
Eiginkona Þorgríms, Ragnhildur Eiríksdóttir, sá spaugilegu hliðarnar á færslunni og sagði í athugasemd:
„Jeminn eini ég er brjál! Ég mun gefa þér mín bestu meðmæli með því að vera enn gift þér!“