Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, birti áhugaverða færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Þar greinir hann frá heimsókn sinni í World Class í Laugum og segist hafa tekið eftir einu hjá mörgum gestum.
„Það er hætt að koma mér á óvart hversu margir þurfa á Google Maps að halda til að rata upp stigann í Laugum (World Class). Ég var þar áðan og þurfti nánast að ,,sviga“ niður stigann því allir sem gengu upp voru með andlitið ofan í símanum, án efa að telja tröppurnar,“ segir Þorgrímur sem hélt áfram:
„Fyrst 12 skref, vinstri, hægri, vinstri, hægri, svo 3 skref til hægri og svo aftur 12 skref upp. Svo beint af augum. Alls ekki líta upp og kanna hvort eitthvað sé framundan. Nema þetta fólk hafi ekki mátt missa af neinu í símanum. Það sem er verst er að seinna fattar þetta fólk að það var að missa af sjálfu sér.“