Þor­grímur ó­sam­mála Lilju: „Það verða alltaf til kjánar og jafn­vel fá­vitar“

Eftir fimmta banaslysið á sjö árum í Reynisfjöru hefur vaknað umræða um hvort það eigi að loka fjörunni. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptamálaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið um helgina að hún sé á því að það eigi að loka Reynisfjöru alveg.

„Ég sem ráðherra mála­flokks­ins horfi auðvitað á heild­ar­hags­muni hans. Það er ekki gott fyr­ir heild­ina þegar það eru orðnir ein­hverj­ir stór­hættu­leg­ir staðir og við ger­um ekk­ert í því,“ sagði Lilja.

Hún sagðist hafa skipa starfshóp um Reynisfjöru í janúar og verkefni hópsins sé meðal annars að meta hvort að skynsamlegt sé að loka ferðamannastaðnum.

Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson segir hins vegar að það sé ekki endilega besta lausnin að banna alltaf allt.

„Það verða alltaf til kjánar og jafnvel fávitar sem virða ekki viðvörunarmerkingar. Ég þekki það sjálfur! Eigum við að loka Vesturlandsvegi ef fleiri en þrjú bílslys verða þar á ári, eða fjögur, eða fimm? Eigum við að banna áfengi ef það veldur fleiri en þúsund dauðsföllum árlega. Hvað erum við að gera til að koma í veg fyrir sjálfsvíg ungs fólks? Eigum við að banna vanlíðan barna og foreldra sem ráða ekki við uppeldishlutverkið?“ skrifar Þorgrímur á Facebook.

Hann segir að hugmynda góða en þörf á að ræða hana mun betur.  „Hvað kostar að hafa manneskju í fullu starfi við það að vakta fjöruna og hafa heimil á fólki? Sumir verða kjánar, eða fávitar alla ævi, og verða þá bara að taka afleiðingum gjörða sinna.“