Þor­grímur: „Ég hefði getað gert miklu betur“ – Við höfum mörg brugðist

„Við sofnuðum á verðinum fyrir langa löngu og KERFIÐ er svo þungt í vöfum að við nenntum ekki að laga til hjá okkur. Samt er kerfið saman­safn af fólki sem ætti að sinna vinnunni sinni með hags­muni barna að leiðar­ljósi. Við for­eldrar eru ekki undan­skildir.“

Þetta segir Þor­grímur Þráins­son, rit­höfundur og full­trúi í liðs­stjórn ís­lenska lands­liðsins í fót­bolta, í pistli á Face­book-síðu sinni.

Þor­grímur gerir þar frétt RÚV sem birtist í gær að um­tals­efni, en í henni var greint frá því að á síðasta skóla­ári hafi 13.662 grunn­skóla­börn fengið sér­kennslu eða stuðning. Um er að ræða hátt í þriðjung allra nem­enda. Tekið er fram að 35% drengja og 24% stúlkna hafi fengið sér­kennslu en hlut­fallið er hæst í fjórða og fimmta bekk.

„Það er ekkert mikil­vægara, þegar maður eignast barn, en að hjálpa því á þroska­leiðinni frá fyrsta degi. Við höfum mörg hver brugðist. Ég hefði getað gert miklu betur, það hefðu flest okkar getað gert,“ segir Þor­grímur og bætir við að hægt væri að skrifa heila bók um hvað hefur farið úr­skeiðis og aðra, tvö­falt lengri, um hvernig hægt sé að snúa þróuninni við.

„Við erum öll að takast á við heims­far­aldur saman og ef við legðumst öll á árarnar við að bæta náms­árangur barna myndum við snúa þessari þróun við á ör­fáum árum.“

Þor­grímur tekur fram að það að fá sér­kennslu sé ekkert til að skammast sín fyrir og það geti jafn­vel lýst á­kveðnum metnaði. Margt annað hangi þó á spýtunni eins og brott­fall úr skóla, dapur les­skilningur og van­líðan. „Við getum gert betur.“