Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, segir Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, hafa hitt naglann á höfuðið í viðtali við Morgunblaðið um helgina.
Í viðtalinu fór Viðar um víðan völl og sagði hann að félagsheimur okkar ætti undir högg að sækja vegna tækniframfara.
„Í dag er mjög auðveldlega hægt að fara gegnum heilan dag án þess að tala beint við nokkra manneskju. Auðvitað auka þessar tæknilausnir á þægindi okkar og spara okkur tíma en um leið er hætt við því að þær dragi úr félagslegum samskiptum,“ sagði Viðar í umræddu viðtali.
Þorgrímur tekur heilshugar undir þessi sjónarmið Viðars og segir hann tímabært að ræða hlutina eins og þeir blasa við okkur öllum.
„Fæstir þora að leggja orð í belg af því við fullorðna fólkið erum ekki barnanna best.
Af hverju erum við að missa? Jú, okkur sjálfum og við látum mata okkur alla daga af allskyns þvælu og innantómum upplýsingum. Við þurfum að vera vond til að vera góð! Og setja okkur sjálfum og börnum okkar mörk,“ segir Þorgrímur á Facebook-síðu sinni og heldur áfram:
„Svo klóra sumir sér í hausnum yfir auknum kvíða, þunglyndi, námsörðugleikum, brottfalli úr skóla, svefnleysi, adhd, einbeitingarskorti og svo mætti lengi telja. Hvað varð um virka hlustun? Það er víst eitthvað til sem heitir orsök og AFLEIÐING: Viðar Halldórsson hittir naglann á höfuðið í Mogganum.“