Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segist ekki ætla að þekkjast heimboð Bjarna Benediktssonar sem bauð Viðreisnarfólk velkomið aftur í flokkinn á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á föstudag.
Fréttablaðið ræðir við Þorgerði um málið. Hún er ekki á þeim buxunum að þekkjast heimboð Bjarna og segist vera heima hjá sér.
„Það er einfalt svar við þessu: Ég er heima hjá mér og hefur aldrei liðið jafn vel núna í pólitík. Það er svo mikilvægt að vera frjáls og ég er frjálsari en nokkurn tímann fyrr,“ segir Þorgerður Katrín.
„Jú jú auðvitað skil ég það að Bjarni þarf að skapa stemningu og það er alltaf stemning þegar það er verið að tala um okkur í Viðreisn. En það er greinilega viðkvæmt að líta í eigin barm og fara yfir eigin verk af því að þau eru ekki góð og ekki í takti við þá hugsun sem tengist frelsinu.“
Viðtalið við Þorgerði Katrínu á vef Fréttablaðsins í heild sinni má lesa með því að smella hér.