Þor­gerður um mál Gylfa: „Erfitt að horfa upp á ein­hvern ást­sælasta son og knatt­spyrnu­mann Ís­lands í þessum að­stæðum“

Það var nóg að ræða í Í­þrótta­vikunni með Benna Bó í þetta skiptið. Þor­gerður Katrín Gunnars­dóttir, for­maður Við­reisnar, mætti þá í settið. Með henni þar sat Hörður Snævar Jóns­son, frétta­stjóri í­þrótta­frétta á Torgi.

Mál Gylfa Þórs Sigurðs­sonar hefur verið í brenni­depli. Rann­sókn lög­reglu er lokið og er málið á borði sak­sóknara­em­bættis sem þarf að taka á­kvörðun um hvort á­kæra eigi eða láta málið niður falla.
Þor­gerður segir að fólk verði að treysta réttar­kerfinu í Bret­landi fyrir málinu.

„Við verðum að gera það. Það er ekkert annað í boði. Fyrir okkur er auð­vitað erfitt að horfa upp á ein­hvern ást­sælasta son og knatt­spyrnu­mann Ís­lands í þessum að­stæðum. Þetta er auð­vitað risa­mál og verður að fara sinn veg en ég vil ekki tjá mig mikið um þetta. Þetta er erfitt en getur líka verið erfitt fyrir mjög marga.“

Hörður tók til máls. „Það veit enginn neitt enn þá um hvað málið í raun og veru fjallar.“

Þor­gerður segir að fólk megi ekki giska í eyðurnar. „Get­gátur núna er það versta. Treystum réttar­ríkinu.“