Næstu klukkutímana bíður íslenska þjóðin í stresskasti eftir úrslitunum í leik Danmerkur og Frakklands, fari svo að Danir vinni leikinn er Ísland komið í undanúrslit Evrópumótsins í handbolta.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, bíður mjög spennt og segir á Twitter að hún sé tilbúin að fyrirgefa allar syndir Dana í garð Íslendinga ef þeir vinna Frakka:
„Ég minni á aldalanga nýlendukúgun, maðkétið mjöl og einokunarverslun Dana. Mömmu fannst þeir líka dónalegir við Gumma okkar Gumm. Fyrir þetta allt má byrja að bæta í kvöld,“ segir hún á Twitter: „Elsku Danir.“
Henrý nokkur kom nýlendutíma-Dönum til varnar:
„Það má velta fyrir sér hvort valið hafi staðið á milli maðkaðs mjöls og miklu betra mjöls eða einskis mjöls. Það meikaði ekki alltaf bisness sens að vera með siglingar hingað norður. Svo eigum við fína sögu af einokun langt frameftir eftir að því tímabili lauk.“
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, ætlar að gera sitt til að hjálpa Dönum að vinna:
Nikolaj Jacobsen, þjálfari Dana, talaði þvert á orð Þorgerðar við Jylland Posten, virðist hann ekki taka nýlendutímabil inn í reikninginn þegar hann sagði: „Ég skulda Íslandi ekki neitt!“