Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir Vinstri græn hafa fórnað hugsjónum um að leggja af kvótakerfið í skiptum fyrir ráðherrastóla. Í grein sem hún skrifar í Morgunblaðið í dag segir hún þetta „spegilmynd þess sem við höfum fengið að fylgjast með í Verbúðarþáttunum“.
Hún rifjar upp upphaf kvótakerfisins þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var á móti.
„Árið 1990 kom sjávarútvegsráðherra Framsóknar hins vegar fram með frumvarp sem fól í sér varanlega úthlutun aflaheimilda og frjálst framsal þeirra. Þetta var stóra kerfisbreytingin,“ skrifar Þorgerður:
„En þegar hér var komið við sögu sat vinstri stjórn í landinu með aðild Alþýðubandalagsins. Samhliða frumvarpinu um ótímabundna úthlutun kvóta og frjálst framsal lagði stjórnin fram frumvarp um Þróunarsjóð sjávarútvegsins. Hugmyndin með honum var að koma á pólitískri fyrirgreiðslustofnun til þess að halda fyrirtækjum gangandi, sem ekki stóðust almenn rekstrarskilyrði.“
Þorgerður Katrín segir andstöðuna við kvótakerfið hafa verið harða innan raða VG og fyrir kosningarnar 2017 hafi það verið stefna VG að hækka auðlindagjöld og tímabinda veiðiheimildir.
„Undir forystu ráðherranna Katrínar Jakobsdóttur og Svandísar Svavarsdóttur í núverandi ríkisstjórn hafa þingmenn VG aftur á móti ítrekað fórnað þeim málstað fyrir einhverja aðra hagsmuni sem fæstum eru sýnilegir,“ skrifar hún.
„Þær Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir hafa fórnað hugsjóninni fyrir ráðherrastóla í fjögur ár á síðasta kjörtímabili og lofað í stjórnarsáttmála að gera það í önnur fjögur ár. Þessi pólitík Vinstri grænna er spegilmynd þess sem við höfum fengið að fylgjast með í Verbúðarþáttunum.“