„Ef Alþingi breytir ekki frumvarpi VG er ljóst um hvað næstu kosningar munu snúast. Þá fær þjóðin tækifæri til að tryggja virka þjóðareign og rétta hlut sinn – eða festa í sessi óbreytt ástand.“
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Grein Þorgerðar ber yfirskriftina Reykskynjari án rafhlaðna en í henni segir hún það hafa verið lærdómsríkt að taka þátt í vinnu formanna allra stjórnmálaflokka um breytingar á stjórnarskrá.
„Á köflum var vinnan vönduð, jafnvel skemmtileg þótt dapurleikinn hafi einkennt síðustu daga vinnunnar. Þegar blákaldur veruleiki og hagsmunapólitík stjórnarheimilisins spilaði sterkar inn í vinnuna.“
Þorgerður segir að í upphafi hafi verið sammælst um að ræða afmörkuð svið stjórnarskrárinnar og að um hvert og eitt yrði flutt sérstakt þingmál, annað hvort með breiðri sátt eða auknum meirihluta.
„Ákvæði um framsal og þjóðaratkvæðagreiðslur hunsaði formaður VG þrátt fyrir samkomulag um annað og leit algerlega fram hjá skýrum vilja almennings um jöfnun atkvæðisréttar. Eitthvað sem ætti ekki að koma á óvart en lengi skal manninn reyna.“
Þorgerður kveðst samt sem áður hafa tekið þátt í vinnunni og lýsti yfir að hún gæti auðveldlega verið sammála þingmálum sem snerta íslenskuna, umhverfismál og forsetakaflann umtalaða.
„Auðlindaákvæði formanns VG gat ég hins vegar ekki með nokkru móti stutt meðan ekki væri ætlunin að virkja þjóðareignina. Ef ekki á að breyta neinu og festa frekar í sessi rétt útgerða yfir fiskveiðiauðlindinni er best að segja það hreint út. Hér gæti orðið óafturkræft tjón. Í stjórnarskrá verða sett falleg orð um þjóðareign sem hvorki breytir né treystir rétt þjóðarinnar yfir auðlindum sínum.“
Þorgerður bendir á að ákall þjóðarinnar eftir samráði hafi verið um virka og raunverulega þjóðareign en ekki sýndarmennsku. Um sé að ræða óskatillögu íhaldsflokkanna sem undirstrikar rækilega til hvers sitjandi ríkisstjórn var stofnuð.
„Forsætisráðherra ætlar að selja þjóðinni að setja upp öryggistæki um allt hús en lætur ekki rafhlöðurnar fylgja með. Hún vísvitandi sleppir þeim. Veitir falska öryggiskennd. Þetta er ekki bara óendanlega dapurt heldur stórhættulegt út frá hagsmunum heildarinnar. Ef Alþingi breytir ekki frumvarpi VG er ljóst um hvað næstu kosningar munu snúast. Þá fær þjóðin tækifæri til að tryggja virka þjóðareign og rétta hlut sinn – eða festa í sessi óbreytt ástand.“