Þorgerður Katrín fann fjársjóð frá föður sínum: „Eins og forlögin hefðu ætlað mér að finna bréfið“

„Stebba spurði mig hvað ég vildi í brúðargjöf. Langar mig til að biðja ykkur að senda mér 20 sviðahausa, þrjú hangikjötslæri úrbeinuð og 3-4 reykta hryggi. 10 pund af góðum harðfiski og einn kassa af hrogna- og síldarpasta í túbum,“

Á þessum orðum hefst færsla Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, sem hún birti á Facebook í dag. Um er að ræða tilvísun úr bréfi sem faðir hennar skrifaði frá Detroit í lok október árið 1959.

„Hann var þá starfandi hjá flugfélaginu PanAm og var að undirbúa brúðkaup sitt og mömmu. Þau voru gefin saman í kirkju heilags Patreks við 5. breiðstræti i New York um mánuði síðar eða 21. nóvember.“ útskýrir Þorgerður.

Þingkonan skrifar þessa færslu í tilefni þess að í dag eiga mamma hennar og pabbi brúðkaupsafmæli, en þau giftust fyrir rúmlega sextíu árum. „Það er sem sagt brúðkaupsdagur mömmu og pabba í dag. Reyndar dánardagur pabba líka en í dag viljum við mamma frekar horfa til atburðarins góða fyrir 63 árum og stóru myndarinnar. Það er einnig í anda pabba og Kaju systur. Fjölskyldunnar okkar.“

Þorgerður segist hafa fundið bréfið um daginn sem var sent til Einars, móðurbróður föður síns, sem bjó á Ásvallagötunni.

„Við mamma hlógum mikið við lestur bréfsins. Það var gott og langþráð. Eins og forlögin hefðu ætlað mér að finna bréfið innan um öll skjölin sem ég þekki þó vel heima í Gilsó. Til að lesa upphátt fyrir mömmu, faðma fólkið okkar og minnast góðra tíma.“

Færsla Þorgerðar endar á hjartnæman hátt þar sem hún ræðir hversu góðir foreldrar sínir hafi verið. Hún segir að þau hafi alltaf verið til staðar.

„Við Kaja ræddum það oft og iðulega hversu lánsamar við værum með foreldra. Þau stútfull af ást í bland við skynsemi og hæfilega sérvisku. Hvöttu okkur ávallt áfram, hindranir væru til að yfirstíga. Og það sem þau voru kærleiksrík, þolinmóð og umburðarlynd gagnvart alls kyns uppákomum hjá okkur systrum. Og þær gátu jú vissulega verið margar!

Bréfið sem fylgir hér lýsir pabba ágætlega, ákaflega stoltur Íslendingur þá búandi í New York og starfandi sem flugþjónn um heiminn. Og eðlilega er beðið um sviðshausa, reykta hryggi, harðfisk og úrbeinuð hangilæri i 80 manna brúðkaupsveislu i New York.“