Þorgerður Katrín: Er hjákátlegt mál í uppsiglingu?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að óskandi sé að frelsi til löglegra kaupa á CBD fæðubótarefni verði fljótlega samþykkt á Alþingi. Þetta kemur fram í grein eftir Þorgerði í Fréttablaðinu í dag.

Þorgerður segir að í dag brosum við góðlátlega að gamalli forsjárhyggju íslenskra stjórnvalda.

„Sjónvarpslaus fimmtudagskvöld voru tilskipun ríkisins svo fólk myndi nýta þau til þess að njóta samverunnar á heimilum sínum. Óljósari var tilgangurinn með því að banna veitingastöðum að reiða fram vín með mat á miðvikudögum. Óskiljanlegt var síðan að banna bjór á Íslandi á meðan vín og vodka var selt ómælt í áfengisverslun ríkisins. Í öllum þessum tilvikum vorum við árum og jafnvel áratugum saman á skjön við flestar nágrannaþjóðir okkar.“

Þorgerður líkir banni við CBD fæðubótarefnum við forsjárhyggju gamalla tíma og segir hún að dragist það enn á langinn gæti nýtt hjákátlegt mál verið í uppsiglingu. „Svona „skammast sín seinna“-mál.“

Í grein sinni bendir Þorgerður á að náttúruleg CBD-fæðubótarefni, einkum unnin úr iðnaðarhampi, hafi reynst fólki um allan heim happafengur gegn alls kyns kvillum.

„Íslendingar, ekki síst eldra fólk, hefur keypt CBD í útlöndum eða orðið sér úti um það eftir krókaleiðum í langan tíma. Það yrði mikið framfaraskref ef hægt verður að nálgast fæðubótarefnin eftir löglegum leiðum, til dæmis í næsta apóteki, heilsubúð eða netverslun. Þar sem fólk getur fengið viðurkenndar vörur sem seldar eru undir eftirliti en ekki í undirheimum.“

Þorgerður bendir svo á að Evrópudómstóllinn hafi nýlega úrskurðað að CBD sé matvara en ekki vímugjafi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi gert slíkt hið sama fyrir tveimur árum og Sameinuðu þjóðirnar taka undir.

„CBD er náttúruleg vara sem er hvorki vímugefandi né skaðleg fólki. Ákvörðun dómstólsins er einföld: Það er bannað að hindra viðskipti með CBD í ríkjum Evrópusambandsins. Kjósi eitthvert þeirra að streitast á móti þarf viðkomandi að færa sönnur á skaðsemi CBD. Það verður vafalaust þrautin þyngri.“

Þorgerður segir að sem betur fer höfum við loksins leyft ræktun iðnaðarhamps á Íslandi og sölu á CBD í húð- og snyrtivörum.

„Núna þurfum við að stíga skrefið til fulls og leyfa viðskipti með fæðubótarefnin, hvort sem er í formi olíu, hylkja eða matvöru sem inniheldur CBD. Málið er brýnt lýðheilsumál. Setjum frelsi fólks í forgang en ekki úrelta forsjárhyggju.“