„Þetta eru kaldar kveðjur úr Hádegismóum, frá dagblaði sem eitt sinn var kjölfesta í íslenskum utanríkismálum og lykilstoð í umræðu um frelsi, mannréttindi, lýðræði og vestræna samvinnu.“
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar skrifar Þorgerður um umtalaða staksteina Morgunblaðsins í síðustu viku, en eins og Hringbraut fjallaði um var þar föstum skotum skotið að Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra.
Gera má ráð fyrir að þar hafi Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra, haldið á penna en í staksteinum var Guðlaugi legið á hálsi fyrir ýmislegt, meðal annars setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.
Í grein sinni skrifar Þorgerður um mikilvægi Evrópusamvinnunnar sem gengur beinlínis út á samheldni og samfélagslega ábyrgð. Þær aðstæður sem nú eru uppi hafi enn frekar sýnt fram á mikilvægi þess að þjóðir heims tali saman. Mikilvægi þess að rödd Íslendinga og annarra vestrænna þjóða heyrist hafi aldrei verið mikilvægara. Því miður hafi sum evrópsk ríki fetað þá braut að vega að evrópsku grundvallarstoðum og grundvallargildum.
„Nú gerist það svo að Morgunblaðið heldur inn á þessar sömu slóðir með því að grafa undan alþjóðastofnunum og setja sig í stellingar sem klappstýra stjórnmálaleiðtoga á borð við Orbán og Trump. Í blaðinu er nú hæðst að utanríkisráðherra fyrir að standa vörð um vestræn gildi í félagi við utanríkisráðherra Norðurlandaþjóðanna. Morgunblaðið segir þeim að sitja hjá þegar vegið er að lýðræði í álfunni. Þetta eru kaldar kveðjur úr Hádegismóum, frá dagblaði sem eitt sinn var kjölfesta í íslenskum utanríkismálum og lykilstoð í umræðu um frelsi, mannréttindi, lýðræði og vestræna samvinnu.“
Þorgerður segir að alheimskreppan sem nú er tilkomin vegna COVID-19 verði ekki leyst með múrum og einangrun. „Hún verður heldur ekki leyst með því að ala á sundrung, tortryggni og ótta.“