Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingiskona og formaður Viðreisnar, birti myndband á Twitter-síðu sinni í gær þar sem sjá má viðtal við hana og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins.
Verðbólga er í hæstu hæðum og má búast fastlega við því að stýrivextir verði hækkaðir enn eina ferðina í næstu viku. Ófáar fjölskyldur hafa fundið vel fyrir verðhækkunum að undanförnu og gæti útlitið í efnahagsmálum verið betra en það er um þessar mundir.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var rætt við Þorgerði og Guðrúnu um stöðuna og hafði Guðrún sína skýringu á stöðunni.
„Við erum sömuleiðis, eins sárt og það er að segja það, þá er fólk sömuleiðis að eyða of miklu og það sjáum við í gegnum það að viðskiptajöfnuður okkar er neikvæður þannig að við erum að flytja meira inn heldur en út,“ sagði hún og bætti við að afleiðingarnar væru veikari króna eða verðbólga.
Þorgerður Katrín sagði við myndbandið af Guðrúnu:
„Við þurfum víst bara að eyða minna og þannig sigra verðbólgudrauginn sem er augljóslega almenningi að kenna. Hver er með í edrúar?“
Þorgerður Katrín sagði í gær að verðbólgan væri fyrst og fremst á ábyrgð ríkisstjórnarinnar sem hefði ákveðið að hækka allskonar gjöld um áramótin. Nefndi hún gjöld á eldsneyti, bíla, áfengi og matvöru til dæmis.
Við þurfum víst bara að eyða minna og þannig sigra verðbólgudrauginn sem er augljóslega almenningi að kenna. Hver er með í edrúar? pic.twitter.com/UkVdsaEVhG
— þorgerður katrín (@thorgkatrin) January 31, 2023