„Ég skaust með grímuna út í Fjarðarkaup um daginn. Einu sinni sem oftar. Þegar ég kem að kjötborðinu stoppar maður mig með glaðsinna augu og grímuna á sínum stað og spyr hvernig það sé að vera á þingi á þessum tímum.“
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í pistli á vef Vísis. Í grein sinni gerir hún útgöngubann, sem kveðið er á um í nýju frumvarpi heilbrigðisráðherra, að umtalsefni. Maðurinn sem stoppaði Þorgerði við kjötborðið lýsti einmitt áhyggjum sínum af þessu.
„Þótt margt sé skrýtið á Alþingi, líkt og á öðrum vinnustöðum, segi ég honum að mér finnist þingmenn allra flokka, sem starfsfólk leggi sig fram. Þingmenn séu að vanda sig, svona oftast nær þótt það þýði ekki endilega að allt sé í lagi. Þessi maður sagðist lítið erindi hafa annað en að árétta tortryggni sína þegar kæmi að útgöngubanninu, sem ríkisstjórnin hefði boðað að gera að lögum. Eins og það væri verið að smygla inn einhverju skrýtnu á þessum tímum. Að því búnu kvaddi hann vinsamlega og ég kláraði kaupin.“
Þorgerður segir að þetta sé ekki eini einstaklingurinn sem hefur komið að máli við hana og rætt tillögu ríkisstjórnarinnar um að setja heimildarákvæði um útgöngubann. Þorgerður segir að áhyggjurnar séu eðlilegar og þeim beri að taka alvarlega.
„Sjálf sé ég ekki knýjandi þörf á að setja svona íþyngjandi ákvæði í lög þegar meira en þokkalega hefur gengið að berjast við veiruna, með þeim tólum og tækjum sem nú eru í gildandi lögum. Almenningur hefur staðið sig vel í stórum dráttum samkvæmt núgildandi lögum undir forystu sóttvarnaryfirvalda.“
Hún segir að svona afdrifaríkt og þungbært úrræði þarfnist yfirvegunar og gaumgæfilegrar skoðunar því um sé að ræða meiriháttar inngrip.
„Það er sjálfsagt að ræða þetta en að setja slíkt ákvæði í miðjum faraldri er kannski ekki besti tíminn þegar varnarmúr persónufrelsis er hvað veikastur fyrir.“
Þorgerður er þeirrar skoðunar að frumvarpið hafi farið heldur óáreitt í gegnum stjórnarflokkana þrátt fyrir alla „frelsispostulana“ þar. Er það mat Þorgerðar að tillögunni þurfi að breyta.
„Ef sérfræðingar telja slíkt ákvæði um útgöngubann nauðsynlegt í lögum, ákvæði sem er stórkostlegt inngrip inn í einstaklingsfrelsið, þá verður að tryggja að því verði aldrei beitt án aðkomu Alþingis. Aldrei. Löggjafarþingið hefur sýnt að þegar miklir hagsmunir eru undir er það fljótt til. Nægir að benda á neyðarlögin í því efni. Engin ástæða er að gera annað en miklar kröfur til stjórnvalda ef beita á útgöngubanni. Annað væri ógn við samfélagsgerðina, lýðræði okkar og frelsi.“