Þorfinnur hjá Origo fékk tiltal vegna ummæla: „Megum ekki hafa skoðun hvort sem hún er rétt eða röng“

Þorfinnur Eggertsson, sérfræðingur hjá Origo, segir að hann hafi fengið tiltal í vinnunni vegna ummæla sem hann setti við frétt sem Stundin birti í dag.

Þorfinnur greinir frá þessu á Facebook og segir:

„Jæja fékk tiltal í vinnunni í dag vegna ummæla um frétt Stundarinnar,“ segir hann. Þorfinnur er ekki kátur.

„Ég viðurkenni að kannski kom ég ekki punktinum nægjanlega vel á framfæri en svona er það í dag við megum ekki hafa skoðun hvort sem hún er rétt eða röng. Án þess að öfgarnir rotti sig saman og krefjist brottreksturs.“

Margir hneyksluðust á viðbrögðum fyrirtækisins við skrifum hans á samfélagsmiðla. Þorfinnur viðurkennir að hann starfi hjá Origo og hefur eytt ummælunum vegna mannauðsstjórans. Dröfn Guðmundsdóttir er mannauðsstjóri Origo og hefur hún lagt mikið kapp á að auka veg kvenna innan fyrirtækisins.

Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvað Þorfinnur sagði en „ummælin voru á þann veg að ekki væri óeðlilegt að karlmenn laðist að kvenfólki. Svo lengi sem þær lýta út fyrir að vera nægjanlega gamlar,“ segir hann.

„Ég hef eytt ummælunum út vegna þess að mannauðsstjóranum fannst þau mega misskiljast.“

Kristinn Sigurjónsson, sem var rekinn úr starfi lektors við Háskólann í Reykjavík, vegna ummæla á samfélagsmiðlum, segir að tjáningarfrelsi stjórnarskrárinnar sé einskis virði. „Ég hefði tekið þetta sem mjög hógværa aðvörun til stráka að vera ekki að hlaupa á eftir of ungum stelpum,“ segir hann. „Það er nokkuð með þetta eins og mitt innlegg, að ef reynt er að koma með aðvörunar fyrir konur, til þess að það verði ekki misskilningur, því konurnar eru alltaf fórnarlömb, þá virðast þær vilja hafa möguleikana opna með að geta ásakað karlmenn.“