„Megin þorri landsmanna styður þær aðgerðir og skilur ástæðuna fyrir því að gripið sé til þess að skerða mannréttindi þeirra og frelsi. En þá hreinlega verður að gera þá skýlausu kröfu til ráðamannanna sem setja reglurnar að þeir fylgi þeim sjálfir.“
Þetta segir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, um mál Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Þórður Snær skrifar grein á vef Kjarnans þar sem hann fer yfir málið.
Eins og komið hefur fram birtust myndir af Þórdísi Kolbrúnu í góðra vina hópi um helgina þar sem 2 metra reglan var augljóslega þverbrotin.
Í grein sinni fer Þórður Snær yfir atburðarás síðustu vikna og bendir á að í lok júlí hafi þau tíðindi orðið að tveggja metra reglan var ekki lengur valkvæð heldur skyldubundin.
„Það að tveggja metra reglan væri orðin að sannkallaðri reglu, ekki bara tilmælum, var alveg nýtt. Þannig hafði henni ekki verið beitt áður. Ástæðan var meðal annars sú að setja frekari ábyrgð á einstaklingsbundnar sóttvarnir, í stað þess að skerða frelsi okkar til athafna, og atvinnufrelsi fyrirtækja, með þeim hætti sem gert var við upphaf fyrstu bylgju smita,“ segir hann.
Þá rifjar Þórður upp grein Þórdísar í Morgunblaðinu fyrir vikur undir fyrirsögninni „Þetta veltur á okkur“. Þar sagði hún meðal annars að persónubundnar sóttvarnir væru öflugasta tækið til að berja veiruna niður.
Þórður fer svo yfir atburði helgarinnar, útskýringu Þórdísar og viðbrögð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Bendir hann á að hvorki Þórdís né Bjarni hafi sagt að hegðun hennar hafi verið röng.
Þórður segir að í kjölfar frétta helgarinnar hafi opinberast að fleiri en Þórdís séu ekki með reglurnar alveg á hreinu.
„Í kjölfar frétta af hegðun Þórdísar um helgina hefur opinberast að það er sannarlega ekki einungis ráðherrann sem hefur talið að reglurnar væru þannig að valkvætt væri hvaða mengi hver einstaklingur velur sem „sitt“ mengi sem þurfi ekki að viðhalda tveggja metra reglunni,“ segir hann og bætir við að fjölmargir hafi komið Þórdísi til varnar.
„Starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins skrifaði meðal annars ummæli við Facebook-færslu ráðherrans þar sem hann sagði: „Síðast þegar ég vissi búum við ekki í lögregluríki. Við fylgjum leiðbeiningum eftir bestu getu og af skynsemi og metum aðstæður hverju sinni. Við erum eftir allt fullorðið fólk. Í vinahópi veit maður betur forsögu hvers og eins og líðan en í hópi ókunnugra. Þið ráðið nándinni sjálfar. Þú ert í fullum rétti Þórdís og hefur ekkert að afsaka.“
Þórður segir að augljóslega geti bæði ekki verið rétt. „Þ.e. að tveggja metra nálægðarviðmið séu skyldubundin milli allra þeirra sem deila ekki heimili, líkt og heilbrigðisráðherra sagði og stendur í reglugerðinni sem gefin var út í lok síðasta mánaðar, og að fullorðnu fólki sé í sjálfsvald sett að ráða nánd sinni við fólk sem býr ekki með því.“
Segir Þórður að stjórnvöld þurfi að útskýra hvor skilningurinn sé réttur: Sá sem Þórdís setur fram og fylgismenn hennar eða sá sem settur var fram í minnisblaði sóttvarnarlæknis, í orðum heilbrigðisráðherra og í reglugerð sem birtist í Stjórnartíðindum.
Þórður segir eðlilegt að ítrustu kröfur séu gerðar til ráðherra í ríkisstjórn sem tekur ákvörðun um að setja reglur sem takmarka frelsi fólks. Meginþorri landsmanna styðji þessar aðgerðir og gera verði þá skýlausu kröfu til ráðamanna sem setja reglurnar að þeir fylgi þeim sjálfir.
„Ungir ráðherrar hafa hlotið framgang á undanförnum árum sem þeir áttu fullt tilkall til. En þeim framgangi fylgir líka óhjákvæmilega að ríkari kröfur eru gerðar til þeirra en venjulegra borgara, og þeir geta á móti ekki gert sömu kröfu um að njóta skjóls frá umfjöllun um þeirra persónulegu málefni.“
Segir Þórður að það eigi sérstaklega við um þá ráðherra sem velja að veita fylgjendum á samfélagsmiðlum innsýn í sitt daglega líf.
„Það er valkvætt að lifa lífi sínu með þeim hætti. Þess vegna er eðlilegt að illa framsettar upplýsingar hafi afleiðingar, á sama hátt og þær vel fram settu þjóna ákveðnum tilgangi sem pólitísk markaðssetning. Þeir bera líka ríka ábyrgð sem fyrirmyndir og athæfi þeirra sem mynduð eru þurfa að endurspegla það. Sérstaklega þegar það virðist vera í andstöðu við kröfur sem stjórnvöld eru að gera til almennra borgara.“
Pistill Þórðar Snæs á vef Kjarnans.