Þórður Snær svarar Bjarna sem svaraði til baka: „Hvergi sagt eða gefið í skyn að þú hafir gert eitthvað af þér“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­málaráðherra og formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, vakti mikla athygli fyrir færslu á Facebook í gærkvöldi þar sem hann finnur að frétta­flutn­ingi af rann­sókn lög­reglu á blaðamönnum sem afhjúpuðu svokallaða skæruliðadeild Samherja.

Bjarni sagði að öll umfjöllun væri byggð á hagsmunum blaðamannanna en ekki á sakargiftunum: „Eng­ar frétt­ir hafa verið flutt­ar af því sem mestu máli skipt­ir og flesta þyrst­ir að vita hvað lög­regl­an kunni að hafa und­ir hönd­um sem gefi til­efni til rann­sókn­ar. Þeir sem stjórnað hafa þeirri umræðu eru þeir hinir sömu og nú eru til rann­sókn­ar,“ sagði Bjarni.

Sjá einnig: Bjarni segir málið byggt á kenningum blaðamannana: „Hvað vita þeir um það á þessu stigi máls?“

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans og einn þeirra sem kalla á í yfirheyrslu, svarar Bjarna á Twitter:

„Það er óvenjuleg upplifun að formaður flokks/ráðherra og dagblað taki sig saman og gefi í skyn að maður sé mögulega þjófur. Glæpamaður,“ segir hann og bætir við: „Fjármálaráðherra til upplýsingar þá veit ég hvað mér er gefið að sök. Ég spurði. Lögregla staðfesti það i yfirlýsingu: Að skrifa fréttir.“

Fleiri hafa gagnrýnt Bjarna, þar á meðal Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, sem segir: „Var einhver að tala um að Samherji hefði óeðlilega mikil áhrif? Hversu oft hefur fjármálaráðherra hent í jafn langan og innblásinn réttlætingarpistil?“

Flokksbróðir hans, Björn Leví Gunnarsson, sló á létta strengi: „Af hverju hringdi dómsmálaráðherra ekki í lögreglustjórann út af þessu? Jú, það voru ekki jól ..“

Bjarni sjálfur mætti svo undir færslu Þórðar og sagði:

„Ég skrifa í eigin nafni og án samstarfs við aðra. Hvergi sagt eða gefið í skyn að þú hafir gert eitthvað af þér. Hvort tveggja rangt. Málið er til rannsóknar. Það er aðalatriðið. Nýtt fyrir mér að þjófnaður komi mögulega við sögu og er annað brot þú segir að þér sé gefið að sök.“