Þórður Snær skýtur föstum skotum á Moggann: „Fá­tækt fólk á líka að velja hvað er í matinn“

Þórður Snær Júlíus­son, rit­stjóri Kjarnans, er allt annað en sáttur með frétta­flutning Morgun­blaðsins í dag er hann gagn­rýnir frétta­flutning blaðsins um matar­út­hlutun.

„Morgun­blaðið með um­fjöllun um hvað stærsti ein­staki eig­andi blaðsins, Kaup­fé­lag Skag­firðinga, er góður við fá­tækt fólk án þess að geta eig­enda­tengsla. Þarna kemur líka fram að það eigi að stofna matar­banka fyrir fá­tækt fólk með næstum út­runninn mat,“ skrifar Þórður á Twitter í dag og deilir mynd af frétta­síðu Morgun­blaðsins.

„Það á ekki að vera hlut­verk Kaup­fé­lags að tryggja fólki í 376 þúsund manna mökkríku landi nánast út­runninn mat svo það svelti ekki. Ríkið á að láta fólkið fá inn­eignar­kort sem sótt yrði um staf­rænt, ekki að láta það standa í röð til að borða, og tapa mann­virðingu um leið,“ skrifar Þórður sem segir fyrir­komu­lagið galið.

„Þetta eru ekki stórar fjár­hæðir í neinum skilningi og galið að sedda við­kvæmustu hópa sam­fé­lagsins sé einka­vætt fyrir­bæri, sem hangi á gjöfum á af­gangs­mat stærstu fram­leið­enda í þessu fá­keppnis- og ein­okunar­kerfi okkar. Fá­tækt fólk à líka að velja hvað er í matinn,“ skrifar Þórður að lokum