Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, gerir skrif framhaldsskólakennarans Páls Vilhjálmssonar að umfjöllunarefni í grein á Kjarnanum sem ber yfirskriftina „Glæpur í höfði Páls Vilhjálmssonar“.
Þar segir Þórður að í færslu Páls á bloggsíðu sinni 10. nóvember setji hann fram samsæriskenningu sem staðreynd. „Kenninguna hafði hann soðið saman úr mörgum röngum ályktunum. Síðan þá hefur hann skrifað fimm slíkar færslur í viðbót um sama mál.“
Þórður segir Pál halda því fram í færslum sínum að lögreglan rannsaki nú tilraunir RÚV og tengdra aðila til að myrða skipstjóra á Akureyri með eitri, svo RÚV gæti komist yfir farsíma hans „í viðleitni sinni til að vinna einhverskonar sigur í fjölmiðlastríði sem hún og aðrir vinveittir fjölmiðlar væru að reka gegn Samherja.“
„Nú ásakar Páll líka fólk og fjölmiðla um þátttöku í glæp. Auk þess hefur einn meðlima skæruliðadeildarinnar svokölluðu, fyrrverandi fjölmiðlamaður, haft samband við fjölmiðlafólk til að ýta undir þennan málflutning. Sá virðist enn vera í fullu starfi hjá Samherja við að bera út óhróður og lygar um fyrrverandi kollega“, skrifar Þórður Snær.
Uppfært: 10:00: Í fyrri útgáfu fréttarinnar var fyrrverandi fjölmiðlamaður nefndur á nafn, það gerir Þórður Snær ekki, er viðkomandi beðinn velvirðingar á því.