„Ég held það megi alveg slá því föstu að líkast til eru þetta, allavega sem hefur verið gert opinbert, mestu fjármunir sem hafa verið greiddir í arf nokkru sinni á Íslandi,“ segir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, um þá ákvörðun aðaleigenda Samherja að framselja hlutabréf sín í fyrirtækinu til barna sinna.
Þórður Snær ræddi málið í Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Þessi gjörningur hefur vakið ýmsar spurningar, meðal annars með hvaða hætti hlutabréfin voru framseld og þá hvort og þá hversu hár skattur er greiddur. Þórður segir að samkvæmt svörum sem Kjarnanum bárust í gærkvöldi sé um að ræða blöndu af fyrirframgreiddum arfi og sölu.
Það var á föstudag að greint var frá því að aðaleigendur Samherja hf., þau Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson, Kristján Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfsdóttir, hefðu framselt hlutabréfaeign sína í félaginu til barna sinna. Fyrir breytingarnar fóru þau samanlagt með 86,5 prósenta hlut í Samherja en hlutur þeirra verður tvö prósent eftir breytingarnar.
Hafa ber í huga að starfsemi Samherja heyrir undir systurfélögin Samherja hf., sem fer með eignir hér á landi, og svo Samherja Holding, sem heldur utan um starfsemi fyrirtækisins erlendis en einnig að hluta til hér á landi. Varða breytingarnar eingöngu hlutabréfin í fyrrnefnda félaginu.
Þórður Snær sagði að framsalið væri að líkindum 60 til 70 milljarða króna virði. Hann sagði að samkvæmt svörum Samherja væri um að ræða blöndu af fyrirframgreiddum arfi, sem fyrr segir, og sölu. „En við fengum ekki svör við því hvert virði hlutanna er í þessum viðskiptum og þar af leiðandi er erfitt að reikna beint út hverjar væntar skattgreiðslur eru,“ sagði Þórður Snær.
Hann bætti við að erfðafjárskattur væri 10% og söluhagnaður af hlutabréfum bæri 22% fjármagnstekjuskatt. „Það ætti að myndast einhver skattstofn þar líka. Svo mun þetta koma á hreint þegar viðhlítandi gögnum verður skilað til fyrirtækjaskrár líkt og lög gera ráð fyrir og þar mun koma þá fram á hvaða gengi þessi viðskipti eiga sér stað og hvaða virði er sett á þessa eignarhluti.“
Aðspurður hvort ekki væri um hreina og klára gjöf að ræða, sagði Þórður svo ekki vera miðað við þau svör sem Kjarninn hefði fengið. „En auðvitað eru gjafir líka skattlagðar. Það er nánast ómögulegt með góðu móti að færa til verðmætar eignir án þess að það sé skattlagt með einhverjum hætti.“