Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, auk fleiri fjölmiðlamanna, hafa kært Pál Steingrímsson, skipstjóra hjá Samherja, fyrir hótun í sinn garð sem barst í tölvupósti í júlí 2022. Þetta kemur meðal annars fram í löngum pistli Þórðar áKjarnanum í dag.
„Hér er einnig hægt að greina frá því að ég, og fleiri fjölmiðlamenn, höfum kært Pál Steingrímsson fyrir hótun í okkar garð sem barst í tölvupósti í júlí 2022. Sú kæra hefur verið undirrituð og móttekin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og er nú til rannsóknar þar,“ skrifar Þórður.
„Full ástæða var talin til að efast stórlega um dómgreind mannsins þegar kemur að okkur og þar af leiðandi varð að taka hótunina alvarlega. Var þar meðal annars horft til þess að fyrir liggur að Páll Steingrímsson hefur gefið það til kynna á samfélagsmiðlum að hann sé ekki fráhverfur því að nota skotvopn á blaðamenn,“ skrifar Þórður.
Hann segir það í samræmi við starfsreglur Kjarnans að kæra beinar hótanir við aðstæður sem þessar.
„Var þar meðal annars horft til þess að fyrir liggur að Páll Steingrímsson hefur gefið það til kynna á samfélagsmiðlum að hann sé ekki fráhverfur því að nota skotvopn á blaðamenn.“
Þórður fer ítarlega yfir rannsóknir lögreglunnar á Norðurlandi eystra á fjórum blaðamönnum í skoðanapistli á Kjarnanum í dag sem er hægt aðlesa hér.