Þórður Snær hjólar í „teflon-manninn” Bjarna Ben: „Það verða engar afleiðingar"”

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, vandar Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, ekki orðin í pistli sem hann birti í dag.

„Það daprasta við ákvörðun Bjarna um að brjóta sótt­varna­reglur var að við­brögð­in, og eft­ir­mál­arn­ir, voru svo fyr­ir­sjá­an­leg­ir,” skrifar Þórður um sóttvarnabrot ráðherra á aðfangadag.

Engar afleiðingar

„Það bjóst bók­staf­lega eng­inn við því að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins myndi þurfa að takast á við ein­hverjar póli­tískar afleið­ingar af gjörðum sín­um,” útskýrir Þórður.

„Ekki frekar en þegar það var opin­berað að hann átti aflands­fé­lag í skatta­skjóli, þegar hann stakk tveimur skýrslum um hita­mál undir stól fram yfir kosn­ing­ar, leyndi því að faðir hans hefði skrifað með­mæla­bréf fyrir upp­reista æru kyn­ferð­is­brota­manns eða þegar hann ákvað að beita sér gegn því að Þor­valdur Gylfa­son fengi rit­stjóra­stöðu hjá hag­fræði­riti sem nær eng­inn hafði nokkru sinni heyrt um, svo nokkur dæmi séu nefnd.”

Eins og steikarpanna

Þórður bendir á að Bjarni sé oft kall­aður teflon-­mað­ur­inn vegna þess að ekkert fest­ist við hann. „Hann hristir öll hneykslis- og álita­mál sem hann kemur sér í af sér eins og og steik­ing­arpanna ýtir frá sér fitu.”

Bjarni sé sigurvegari þessa máls líkt og annarra að mati Þórðar. „Málið mun ekki hafa neinar afleið­ingar vegna þess að Bjarni vill ekki að þetta hafi neinar afleið­ing­ar.” Hann sé of stór til að bera ábyrgð.

„Þegar Bjarni gerir mis­tök þá er það sam­starfs­flokk­anna að verja þau, og ganga um leið á póli­tíska inn­eign sína. Það er þeirra hlut­verk.”