Þórður Snær búinn að stefna Páli Vil­hjálms­syni: „Yfir vötnum stefnunnar svífur sá andi að blaða­menn séu æðstu­prestar opin­berrar um­ræðunnar“

Páll Vil­hjálms­son, blaða­maður og kennari, greinir frá því á bloggi sínu að Þórður Snær Júlíus­son rit­stjóri Kjarnans sé búinn að stefna sér. Þórður hótaði því að maí að stefna Páli en hann hefur nú látið verða að því.

„Tveir sak­borningar í RSK-saka­málinu, Þórður Snær Júlíus­son og Arnar Þór Ingólfs­son stefna höfundi Til­fallandi at­huga­semda fyrir héraðs­dóm vegna meintra æru­meiðandi um­mæla. Lög­maður þeirra fé­laga, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son krefst ó­merkingar tvennra um­mæla,“ skrifar Páll í bloggfærslu.

  1. Arn­ar Þór Ing­ólfs­­son og Þórður Snær Júlí­us­­son, blaða­menn á Kjarn­an­um, [...] eiga aðild, beina eða ó­beina, að byrlun Páls skip­stjóra Stein­gríms­sonar og stuldi á síma hans.

og

  1. Sak­sóknari mun gefa út á­kæru á hendur blaða­mönnum RSK-miðla, lík­lega í septem­ber.

„Þeir Þórður Snær og Arnar Þór vilja hvor um sig 1,5 m.kr. í miska­bætur og að máls­kostnaður sé greiddur af bloggara,“ skrifar Páll í blogg­færslu í dag. Páli skip­stjóra var byrlað 3. maí 2021 og síma hans stolið á meðan hann var með­vitundar­laus. Gögn úr símanum urðu frétt Þórðar Snæs og Arnars Þórs í Kjarnanum 21. maí í fyrra. Lög­reglu­rann­sókn leiddi til þess að Þórður Snær og Arnar Þór fengu stöðu sak­borninga, segja það sjálfir í frétt Kjarnans 14. Febrúar,“ skrifar Páll enn fremur.

„Sama hvernig á það er litið eiga Þórður Snær og Arnar Þór aðild að RSK-saka­málinu. Annars væru þeir ekki sak­borningar. Í síðustu viku fengu Þórður Snær og Arnar Þór um 400 blað­síðna skýrslu frá lög­reglu. Hvers vegna skyldi lög­reglan senda fé­lögunum skýrslu um RSK-saka­málið ef þeir eiga enga aðild? Varla þarf að út­skýra aðildar­leysi á 400 blað­síðum. Engin um­fjöllun er í Kjarnanum, ekkert um að blaða­menn þar á bæ séu full­kom­lega sak­lausir, eigi enga aðild.“

„Í stað þess að gera grein fyrir stöðu sinni í RSK-saka­málinu stefna blaða­mennirnir bloggara fyrir að segja að þeir eigi beina eða ó­beina aðild að saka­máli þar sem þeir eru sak­borningar. Yfir vötnum stefnunnar svífur sá andi að blaða­menn séu æðstu­prestar opin­berrar um­ræðu. Aðrir skulu þegja, nema ef tekið er undir mál­flutning blaða­manna. Þá má tala. Textinn er með höfundar­ein­kennum rit­stjóra Kjarnans. Með til­gerða­legu yfir­læti segir að bloggari sé ekki í blaða­manna­fé­lagi og því ó­verðugur. Það er þá munur að vera í Blaða­manna­fé­lagi Ís­land sem verð­launar saka­menn.“

„Messíasar­komplex Þórðar Snæs er al­kunnur. Í lög­reglu­yfir­heyrslu var við­kvæðið; en ég er verð­launa­blaða­maður. Über-Doddi stað­hæfir að það sé æru­meiðing að hann sé sak­borningur og eigi yfir höfði sér á­kæru. Maður sér fyrir máls­vörnina í dóms­sal: ég er hafinn yfir lög og rétt, orð mín eru vegurinn, sann­leikurinn og lífið. Kjarninn er hei­lög ritning,“ skrifar Páll.

„Lög voru brotin á Páli skip­stjóra þegar honum var byrlað, síma hans stolið, einka­gögn gerð opin­ber og send í um­ferð til ó­við­komandi. Þórður Snær ann skip­stjóranum ekki verndar laganna. En Þórður Snær heimtar að lögin verndi sína æru. Hræsni í hæstu hæðum. Mála­til­búnaður Þórðar Snæs og Arnars Þórs er einn stór brandari. Ef það má ekki segja opin­ber­lega al­mælt tíðindi, þótt þau komi við kaun blaða­manna, má pakka tjáningar­frelsinu saman og senda það í Gúlagið,“ skrifar Páll að lokum.