Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, er allt annað en sáttur við skrif Morgunblaðsins í dag. Staksteinar blaðsins í dag – eins og svo oft áður – eru tileinkaðir skrifum bloggarans Páls Vilhjálmssonar sem virðist vera í miklu uppáhaldi í Hádegismóum.
Páll hefur varpað ýmsum samsæriskenningum fram að undanförnu, meðal annars að eitrað hafi verið fyrir Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja og íslenskir fjölmiðlamenn hafi komið þar nærri. Þá hefur hann sagt að lögreglurannsókn standi yfir á starfsháttum RÚV og aðkomu stofnunarinnar að eitrun og stuldi.
„Morgunblaðið hefur ekki getað fengið staðfestingu á sumum fullyrðingum Páls í umræddu máli og gætir því sjálfsagðrar varúðar á meðan það hefur ekki breyst,“ segir í lok staksteina dagsins.
Þórður Snær bregst við þessu og segir á Twitter-síðu sinni:
„Bloggari hefur verið að ásaka mig og annað fólk um þátttöku í glæp með síendurteknum brjáluðum færslum. Allt er þetta ósatt og augljós meiðyrði. Í bloggarann ætla ég ekki að eyða meiri tíma. En ritstjórar Moggans ákveða að magna þetta upp með ömurlegasta fyrirvaranum. Botnfall.“
Bloggari hefur verið að ásaka mig og annað fólk um þátttöku í glæp með síendurteknum brjáluðum færslum. Allt er þetta ósatt og augljós meiðyrði. Í bloggarann ætla ég ekki að eyða meiri tíma. En ritstjórar Moggans ákveða að magna þetta upp með ömurlegasta fyrirvaranum. Botnfall. pic.twitter.com/EFDeRwbQYB
— Þórður Snær Júlíusson (@thordursnaer) December 7, 2021