Þórður Snær baunar á Magnús: Hver drap Friðrik Dór? fékk hærri styrki

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, skýtur föstum skotum á Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóra hjá Símanum, í nýjum leiðara. Tilefnið er umsögn Magnúsar um frumvarp um Ríkisútvarpið þar sem Magnús segir það sóun á opinberum fjármunum að ríkisstyrkja fréttamiðla, vill hann frekar að RÚV verði tekið af auglýsingamarkaði.

„Þess utan má óttast að lýðræðinu stafi hætta af því, að sjálfstæðir fjölmiðlar þurfi að segja sig til sveitar sem flestir hafa nú því miður gert,“ segir í umsögn Magnúsar.

Þórður Snær gerir athugasemd við þetta: „Þar hunda­flautar Magnús um að fjöl­miðlar muni ekki bíta í hönd­ina sem fæðir þá, þrátt fyrir að hafa ekk­ert hand­bært til að byggja þann flautu­konsert á,“ segir hann. Til séu rannsóknir sem sýni að þetta sé ekki rétt:

Í fram­sögu Idu Willig, pró­fess­ors í fjöl­miðla­fræði við Hró­arskeldu­há­skóla, var fjallað um fjöl­miðla­styrki í Dan­mörku. Þar kom fram að engar rann­sókn­ir, úttektir eða raun­dæmi styddu flautið um und­ir­lægju­semi fjöl­miðla sem nytu opin­berra styrkja við vald­ið,“ segir hann um málþingið sem haldið var nýverið: „Enginn starfs­maður eða sölu­stjóri frá Sím­anum var við­staddur mál­þing­ið.“

Þórður bendir svo á að Síminn fái líka ríkisstyrki, sem kallaðir séu endurgreiðslur. „End­ur­greiðslur er bara fínt orð sem sett var inn í lögin svo hrein­trú­uðu kap­ít­alist­arnir sem segja sig til sveita með því að taka við rík­is­styrkjum geti sann­fært sig um að þetta sé eitt­hvað ann­að. Þetta er styrk­ur. Gjöf.“

Greiðslurnar sem farið hafi til Kjarnans, fyrir að birta þúsundir frétta og fréttaskýringa sé dropi í hafið miðað við greiðslur til Símans, þeir hafi fengið minna en Síminn fékk fyrir þættina Hver drap Friðrik Dór?: „Þættir eins og Logi 3 eða Hver drap Frið­rik Dór fengu hvor um sig sam­bæri­lega rík­is­styrki og Kjarn­inn fékk á síð­asta ári til að halda úti níu manna frétta­fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem fram­leiddi á fjórða þús­und frétt­ir, frétta­skýr­ing­ar, við­töl, hlað­vörp og umræðu­efni á árinu 2021.“