Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans segist „mindblown“ yfir þvælunni sem hann segir birtast í Staksteinum Morgunblaðsins í dag.
Í Staksteinum eru Píratar sagðir flækjast fyrir lýðræðinu. Þar er líka fullyrt að til Íslands streymi stjórnlaust þúsundir flóttamanna með margr amilljarða króna kostnaði fyrir ríkissjóð. Þórður segir um að ræða hræðsluáróður og ábyrgðartilfærslu.
„54% flóttamanna sem komu í ár koma frá Úkraínu, vegna reglugerðar sem Jón Gunnarsson skrifaði undir í mars, og 25% frá Venesúela, eftir að Útl hóf að veita fólki þaðan viðbótarvernd 2018. Fyrir utan þá hafa komið 859. Stjórnlaust? Neh, meira hræðsluáróður og ábyrgðartilfærsla.“
Þórður er nokkuð gjarn á að deila efni Morgunblaðsins á Twitter síðu sinni og benda á það sem honum þykir miður. Einn svarar Þórði og segist hallast að því að staksteinar séu bara þarna svo að Þórður dreifi þeim æfur á hverjum morgni.
Þá svarar Þórður: „Já, það er ekki ósennileg skýring. Að þetta sé skrifað bara fyrir mig. En æfur er ég ekki. Oft mindblown yfir þvælunni samt.“
54% flóttamanna sem komu í ár koma frá Úkraínu, vegna reglugerðar sem Jón Gunnarsson skrifaði undir í mars, og 25% frá Venesúela, eftir að Útl hóf að veita fólki þaðan viðbótarvernd 2018. Fyrir utan þá hafa komið 859. Stjórnlaust? Neh, meira hræðsluáróður og ábyrgðartilfærsla. pic.twitter.com/Gdd23KcwBw
— Þórður Snær Júlíusson (@thordursnaer) December 16, 2022