Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og stjórnmálaleiðtogi, segir í grein í Morgunblaðinu í dag að þættirnir Verbúðin séu góðir til að rifja upp stöðu sjávarútvegsins, það eru ekki allir sammála niðurstöðunum.
„Um þessar mundir sýnir RÚV þættina Verbúðina sem segja frá hvernig komið var fyrir sjávarútveginum þegar stjórnmálamenn tóku upp fiskveiðistjórnunarkerfið og breyttu öllum lögmálum til að losa atvinnuveginn frá gjaldþrotum og eilífum áföllum,“ skrifar Guðni í dag.
„En gengisfellingar voru tíðar hér áður vegna þess að sjávarútvegurinn rak sig ekki. Sjávarútvegurinn bjó við umgjörð sem gerði það að verkum að útgerðir hvorki lifðu né gátu dáið. Enda var viðkvæðið að allt væri að fara „norður og niður og til andskotans“, eins og stjórnmálamaðurinn Sverrir Hermannsson orðaði það.“
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, vekur athygli á þessu á Twitter og segir:
„Ef Guðni Ágústsson heldur að Verbúðin sè óður um hversu skynsamlegt fiskveiðistjórnunarkerfi Íslendinga er, þá hef ég miklar áhyggjur af geta hans til að meðtaka upplýsingar. Og því að hann hafi verið ràðherra hér árum saman.“
Margir taka undir þetta með honum, þar á meðal þingmaðurinn Björn Leví Gunnarsson sem segir: „Viljinn til að endurskrifa söguna, til að fela klúðrið sem þau bera ábyrgð á, er óendanlegur.“