Þórður segir ekkert að marka kosningaloforðin: „Það var hreinlega ekki gert“

Þórður Gunnarsson, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni, segir ekkert að marka kosningaloforð Samfylkingarinnar og kallar það hringrásarhagkerfi.

„Árið 2018 lofaði Samfylkingin því fyrir sveitastjórnarkosningar að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Bjóða átti öllum börnum á aldrinum 12 til 18 mánaða leikskólapláss. Vorið 2018 var 800 nýjum leikskólaplássum lofað fyrir kosningar. Sex nýjum leikskólum,“ segir hann í grein á vef Vísis.

„Staðan fjórum árum síðar er að ekkert hefur breyst. Biðlistar eru ennþá jafnlangir eða lengri. Síðastliðið haust voru svokallaðar Ævintýraborgir kynntar til sögunnar. Er þar um að ræða stæður af færanlegum vinnuskúrum sem hafa verið innréttaðir sem daggæslurými fyrir börn. Ekki ósvipuð aðstaða og starfsmenn Impregilo nutu við byggingu Kárahnjúkavirkjunar á sínum tíma.“

Hann segir nýju hverfin vera orðin full af fólki og ekki einu sinni Borgarlínan geti leyst það.

„Frambjóðendur Samfylkingarinnar boða nú - árið 2022 - leikskólapláss fyrir öll 12 til 18 mánaða börn. Allir sjá hvernig gekk að standa við þetta sama loforð fyrir fjórum árum síðan. Það var hreinlega ekki gert. Er með ólíkindum að sama loforði sé teflt fram óbreyttu nú.“