Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, vandar Birgi Ármannssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og formanni undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar, ekki kveðjurnar í pistli á vefsíðu Kjarnans í dag. Hann segir að Birgi sérfræðing í að svara innihaldslausum svörum, éta upp tíma þegar Sjálfstæðisflokkurinn þurfi á að halda og drepa málum sem þessum á dreif.
Birgir, ásamt öðrum meðlimum undirbúningsnefndarinnar, hafa staðið í ströngu síðustu tæpu tvo mánuði við það að rannsaka meðferð kjörgagna og hvernig var staðið að kosningamálum í Norðvesturkjördæmi. Þórður segir nefndina hins vegar hafa brugðist verulega.
Þá varpar hann fram samsæriskenningu um að starf nefndarinnar hafi hreinlega verið yfirvarp svo að ríkisstjórnarflokkarnir gætu tekið lengri tíma í samtölum sínum fyrir erfið mál:
„Það læðist að manni sá grunur að tveggja mánaða starf undirbúningsnefndar fyrir afhendingu kjörbréfa hafi fyrst og síðast verið yfirvarp svo Vinstri græn og kerfisflokkarnir tveir gætu tekið sér góðan tíma í að finna lægsta samnefnarann í lykilmálum sem þeir þurfa að lenda með einhverjum hætti í stjórnarmyndunarviðræðum,“ segir Þórður.
Hann heldur því fram að niðurstaðan hafi verið fyrifram ákveðin: „Alls liðu 140 dagar frá síðasta þingfundi í júli og fram að þeim fyrsta á þessu kjörtímabili, sem fór fram fyrr í vikunni. Löngu hafi verið búið að ákveðna hver niðurstaðan um úthlutun kjörbréfa ætti að vera.“
Því næst vindur Þórður sér að því að úthúða Birgi Ármannssyni. Hann sakar Birgi um óásættanleg vinnubrögð, á sama tíma og hann hrósar honum kaldhæðnislega: „Enginn er betur til þess fallinn að leiða slíka vinnu en Birgir Ármannsson. Hann er færasti stjórnmálamaður Íslands í að drepa málum á dreif, í að éta upp tíma þegar flokkur hans þarf á slíku að halda og hefur gert það að pólitískri listgrein að svara spurningum með svörum án innihalds. Birgir leysti fyrir vikið verkefni sitt sem formaður undirbúningsnefndarinnar óaðfinnanlega.“
Þórður segir enn fremur að undirbúningsnefndin hafi brugðist: „Þótt nefndin hans Birgis hafi starfað í tvo mánuði, fundað í á fjórða tug skipta, farið í oft í ferðir í kjördæmið og skilað skýrslu upp á 91 blaðsíðu þá er það ekki staðfesting á því að vinna nefndarinnar hafi verið góð. Raunar má færa rök fyrir því að hún hafi brugðist verulega,“ segir hann.
Þórður kallar niðurstöðuna sem meirihluti kjörinna fulltrúa á Alþingi komst að í gærkvöldi sé fullkomið fúsk: „Hér hljóta flestir að átta sig á því að niðurstaðan sem var samþykkt í gær, og skipar löggjafarsamkundu þjóðarinnar á komandi kjörtímabili, er fullkomið fúsk.“
Þórður sparar ekki stóru orðin sem fyrr og fullyrðir að enginn þeirra sem kaus með niðurstöðunni hafi fylgt sinni stjórnarskrárbundnu sannfæringu: „Þeir sem kusu með henni gerðu það vegna þess að niðurstaðan hentaði þeim. Engin gerði það af fullvissu um að framkvæmd kosninga hafi verið í lagi. En þetta fólk rökstyður afstöðu sína fyrir sjálfu sér með því að skýr brot á framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi hafi ekki haft áhrif á endanlega niðurstöðu kosninga,“ segir Þórður.
Hann vekur lesendur til umhugsunar: „Niðurstaðan, og rökstuðningurinn sem er settur fram fyrir henni, leiðir til þess að óvissa er um hvort það þurfi yfir höfuð að fara eftir kosningalögum við framkvæmd kosninga ef meirihluti þingmanna er ánægður með framsetta niðurstöðu. Þetta er óumdeilanleg staðreynd. Meltið hana aðeins.“