Þórður sá gestalistann hjá Gísla Marteini og spáir fyrir um framboðstilkynningu

RÚV hefur afhjúpað gestalistann í Vikunni hjá Gísla Marteini í kvöld. Þar verða þau Þorbjörg Þorvaldsdóttir, oddviti Garðabæjarlistans, Siggi Gunn útvarpsmaður, Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR, sem og fréttamaðurinn fyrrverandi Einar Þorsteinsson.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, rak augun í gestalistann og segir á Twitter:

„Ég spái því að það verði tilkynnt um framboð hjá Gísla Marteini í kvöld.“

Dylst engum þar vísar hann til Einars Þorsteinsonar sem búist er við að muni leiða Framsóknarflokkinn í Reykjavík í komandi kosningum. Handboltahetjan Björgvin Páll Gústavsson ætlaði sér stóra hluti fyrir flokkinn í komandi kosningum en dró svo framboðið til baka, er ljóst að eitthvað hefur átt sér stað að tjaldabaki í flokknum.