Þorður opnar sig um rann­sókn lög­reglunnar á blaðamönnum: „Sagan af manninum sem ekki var eitrað fyrir“

„Ég vil byrja á því að taka það fram að þess­ari grein er ekki ætlað að vera rit­­stjórn­ar­efni, heldur yfir­­lits- og skoð­ana­­grein sem ég skrifa í eigin nafni, en ekki sem rit­­stjóri eða blaða­­maður Kjarn­ans,“ svona hefst pistill Þórðar Snæs Júlíus­sonar, rit­stjóra Kjarnans á vef miðilsins í dag.

„Á­stæðan fyrir því að sú ó­venju­­lega leið er val­in, að birta grein­ina í raun sem að­senda grein á miðli sem ég stýri, eru þær að­stæður sem skap­aðar hafa verið með virkri lög­­reglu­rann­­sókn, sem bein­ist meðal ann­ars að mér per­­sónu­­lega, og snýst um um­fjöllun Kjarn­ans og Stund­ar­innar um hina svo­köll­uðu „Skæru­liða­­deild Sam­herj­a“. Þær að­stæður skapa ýmsan vafa um hæfi,“ bætir Þórður við.

Hann segir að til­efni greinarinnar sé að fyrir nokkrum dögum síðan fékk hann og lög­maður hans af­hent öll gögn máls vegna um­ræddar rann­sóknar.

„Gögnin eru um­fangs­­mikil og afar frétt­­næm, í þeim eru upp­­­lýs­ingar sem eiga mikið erindi við al­menn­ing og varpa skýru ljósi á það sem átt hefur sér stað,“ skrifar Þórður.

„Geta þess mið­ils sem ég stýri til að fjalla um efnið eftir hefð­bundnum leið­um, og fylgja á sama tíma bæði skrif­uðum siða- og starfs­­reglum sem ó­skrif­uð­um, er flók­in, og senni­­lega ó­mögu­­leg. Ég get ekki sjálfur fjallað um efnið í frétta­­skrif­um, enda and­lag um­fjöll­un­ar­inn­ar. Sama gildir um Arnar Þór Ing­ólfs­­son, blaða­mann á Kjarn­an­um. Við skoð­uðum þann mögu­­leika að setja upp far­veg sem úti­­lok­aði okkur frá að­komu að með­­ferð gagn­anna, með því að færa rit­­stjórn­ar­vald yfir þessu eina máli til frétta­­stjóra/fram­­kvæmda­­stjóra og vinnslu til þeirra blaða­manna sem eiga ekki hlut að máli. Það skapar samt sem áður þá stöðu að biðja blaða­­menn að fjalla um mál sem teng­ist nánum sam­­starfs­­mönn­um,“ skrifar Þórður.

„Að sama skapi er ekki hægt að birta gögnin í heild sinni, þar sem í þeim eru við­­kvæmar per­­sónu­­upp­­­lýs­ingar um nafn­­greint fólk sem gætu valdið því fólki ó­þörfum skaða.“

„Önnur leið væri að bjóða öðrum fjöl­­miðli eða sjálf­­stætt starf­andi blaða­manni gögnin til um­fjöll­unar og setja rit­­stjórn­ar­­legt vald í hans hend­ur. Þar verður þó að taka með í reikn­ing­inn að í gögn­unum eru skjá­­skot af kyn­lífs­­mynd­bönd­um, sem ég hafði aldrei séð áður, en lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hefur nú dreift til mín.“

„Miðað við fyr­ir­­liggj­andi laga­­túlkun þess lög­­reglu­em­b­ættis væri ég að brjóta lög með því að deila efn­inu með öðrum, líkt og lög­reglan gerði með mér,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa pistil Þórðar í heild sinni á vef Kjarnans.