Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, lætur Gísla Martein heyra það á Twitter og sakar hann um að gera fólki upp skoðanir.
Gísli Marteinn tísti frétt Vísis í dag þar sem Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir að hún muni ekki samþykkja það að taka yfir rekstur borgarlínu ef reksturinn er með öllu ósjálfbær enda gæti það haft í för með sér gríðarlegan kostnað fyrir sveitarfélögin.
Gísli Marteinn segir að það hefur lengi verið fólk sem vill leggja niður almenningssamgöngur alveg. „Sem er galin hugmynd og myndi sprengja samgöngukerfin. Þetta fólk er mjög illa að sér um það hvernig borgir virka. Hópurinn hefur hingað til ekki ráðið miklu en er núna kominn í stjórnunarstöður.“
Þórður er ekki alveg sammála Gísla og sakar hann um að vera íslenska útgáfan af FOX News manninum Tucker Carlson.
„Ásdís Kristjánsdóttir ræðir vanda almenningssamgangna, hinn íslenski Tucker Carlson bregst við með að gera ónefndu samflokksfólki Ásdísar upp skoðanir sem eru þvert á það sem hún er að segja. Vandi Strætó eða Borgarlínu verður ekki leystur án þess að fram fari heiðarleg umræða,“ skrifar Þórður
„Þetta er líka ósmekklegt þar sem Gísli Marteinn var lengi vel erfðaprins og veggspjaldsdrengur XD í Reykjavík, að koma óheiðarlega fram við fólkið sem áður bar hann á höndum sér. Sjálfsagt að skipta um skoðun en að koma illa fram við fólk sem áður reyndist honum vel,“ bætir hann við.
Ásdís Kristjánsdóttir ræðir vanda almenningssamgangna, hinn íslenski Tucker Carlson bregst við með að gera ónefndu samflokksfólki Ásdísar upp skoðanir sem eru þvert á það sem hún er að segja. Vandi Strætó eða Borgarlínu verður ekki leystur án þess að fram fari heiðarleg umræða. https://t.co/dXJl8aiDfM
— Thordur Palsson (@PalssonThordur) October 22, 2022