Þórður æfur yfir fyrir­sögn Við­skipta­blaðsins um Krist­rúnu: „Litlir kallar“

Þórður Snær Júlíus­son, ristjóri Heimildarinnar, er ekki sáttur með kollega sína á Við­skipta­blaðinu fyrir að hafa notað orðið sáð­lát í skoðana­grein um fylgi Sam­fylkingarinnar.

Net­verjar hafa verið æfir yfir skoðana­dálknum síðustu daga en þar er talað um að fylgi Sam­fylkingarinnar sam­kvæmt skoðana­könnunum gæti verið að ná hæstu hæðum of snemma þar sem um þrjú ár er í kosningar.

Við­skipta­blaðið á­kvað að draga í land og hefur nú breytt nafni greinarinnar úr „ó­tíma­bært sáð­lát“ í „ó­tíma­bæran fögnuð.“ Þá hefur einu setningunni þar sem orðið sáð­lát kom fram einnig verið breytt en hún hljóðaði áður svona:

„Jafnaðar­menn virðast þó enn einu sinni hafa fengið ó­tíma­bært sáð­lát. Við skulum ekki gleyma því að Sam­fylkingin og fleiri stjórnar­and­stöðu­flokkar hafa inn á milli náð afar lofandi árangri í skoðana­könnunum án þess að slíkt skili sér í kjör­kassann.“

En hljóðar nú svona.

„Jafnaðar­menn virðast þó enn einu sinni hafa fagnað of snemma. Við skulum ekki gleyma því að Sam­fylkingin og fleiri stjórnar­and­stöðu­flokkar hafa inn á milli náð afar lofandi árangri í skoðana­könnunum án þess að slíkt skili sér í kjör­kassann.“

Þórður Snær er allt annað sáttur með þessa orða­notkun og þegar það kemur að vonar­stjörnu Sam­fylkingar­manna og lætur Við­skipta­blaðið heyra það.

„Litlir kallar að gera það sem litlir kallar gera. Skíta upp á bak og vona að skíturinn hverfi vegna þess að þeir láta eins og sé ekki þarna. En lyktina finna allir. Á­­gætt að þessi vett­vangur minnstu nafn­lausu kallanna opin­beri sig aftur og aftur og aftur fyrir það sem hann er,“ skrifar Þórður.

Ragna Sigurðar­dóttir, vara­borgar­fulltúri Sam­fylkingarinnar, fagnar tísti Þórðar og nafn­greinir alla blaða­menn Við­skipta­blaðsins undir tístinu.