Þór­dís sendir yfir­lýsingu um kjarna­vopn úr ein­angrun: „Börnin höfðu hljótt á meðan“

Þó­r­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, utan­­­ríkis- og þróunar­­sam­vinnu­ráð­herra, er með Co­vid-19 um þessar mundir eftir að hún og allir fjöl­skyldu­með­limir hennar greindust í gær. Þau eru þó öll ein­kenna­laus og full­frísk og hefur Þór­dís því unnið úr ein­angrun.

Á Face­book síðu sinni greinir hún frá því að hún hafi ýmis­legt að gera í ein­angrun. Eins og taka upp og senda yfir­lýsingu á ráð­stefnur í New York um endur­skoðun á samningnum um bann við dreifingu á kjarna­vopnum (Nuc­lear Non-Proli­feration Treaty).

„Börnin höfðu hljótt á meðan á að­gerðinni stóð og Ronja kisi lét það vera að rölta a lykla­borðið eins og hún er vön,“ skrifar Þór­dís.