Þórdís segir að íslenskar konur þekkist á þessu í útlöndum: „Erlendir vinir mínir hafa flestir ef ekki allir minnst á þetta“

Þórdís Gísladóttir rithöfundur birti áhugaverða færslu á Twitter-síðu sinni um helgina. Þar segir hún að minnst þrjár erlendar vinkonur hennar hafi talað við hana um að íslenskar konur þekkist á einu ákveðnu atriði í útlöndum.

„Dönsk, íslenskumælandi, vinkona mín var að segja mér að hún þekki oftast íslenskar konur í Kaupmannahöfn á yfirbragðinu, mest áberandi eru dökklituðu, plokkuðu augnabrúnirnar sem eru oft greiddar upp,“ segir Þórdís og bætir svo við:

„Hún er þriðja útlenska vinkona mín sem ræðir íslenskar augnabrúnir við mig.“

Ef marka má býsna fjörugar umræður undir þræði Þórdísar á Twitter hafa fleiri útlendingar haft orð á þessu en umræddar vinkonur Þórdísar.

„Erlendir vinir mínir hafa flestir ef ekki allir minnst á þetta,“ segir í einni athugasemd og í annarri segir: „Sænskur vinur minn í sumar: “Hérna hvað er málið með augabrúnir á íslenskum konum?”