Þór­dís Jóna með lausn á mann­auðsvanda Land­spítalans: „Vakta­vinna er ekki fjöl­­skyldu­væn“

Þór­­dís Jóna Sigurðar­dóttir, fram­­kvæmdar­­stjóri og fram­bjóðandi Við­reisnar, segir að á næstu mánuðum mun Við­reisn í sam­starfi við LSH beita sér fyrir því að settur verði á lag­girnar sér­stakur leik­skóli fyrir LSH í sam­starfi við ríkið. Þetta skrifar hún í nýjum skoðana­pistli í Frétta­blaðinu í dag.

Í pistlinum talar Þór­­dís um að mann­ekla hafi lengi verið vanda­­mál á land­­spítalanum og segir hún að vinnu­­tímarnir séu helsta á­­stæða þess.

„Vakta­vinna er ekki fjöl­­skyldu­væn og fátt í okkar sam­­fé­lagi sem styður við fjöl­­skyldu­­fólk í þeirri stöðu. Það er við­bótar­á­lag að finna út úr því hvar börnin eiga að vera þegar vaktirnar eru utan hefð­bundins vinnu­­tíma,“ segir hún meðal annars.

Þá telur hún að lausnin við vanda­­málinu sé að það verði sér­­stakur leik­­skóli fyrir starfs­­menn Land­­spítalans að nor­rænni fyrir­­­mynd.

„Við teljum rétt að sá skóli verði boðinn út til sjálf­­stætt starfandi aðila og tryggt að þjónustan verði á heims­­mæli­kvarða líkt og er í leik­­skólum borgarinnar,“ segir hún og vill að í fram­haldinu verði skoðað hvernig hægt sé að koma til móts við annað starfs­­fólk í ó­­líkum fyrir­­­tækjum og stofnunum.

Pistilinn má lesa í heild sinni hér.