Ein þekktasta baráttukona landsins gegn kynbundnu ofbeldi, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, sendir útvarpsmanninum Frosta Logasyni pillu með áhrifaríku myndbandi.
Þórdís nefnir Frosta ekki á nafn en ljóst er af fréttum síðustu daga að þar á hún við útvarpsmanninn. Frosti baðst í gær afsökunar á hegðun sinni í garð fyrrverandi kærustu sinnar, Eddu Pétursdóttur, sem opnaði sig við Stundina um samband þeirra árin 2009 til 2013. Hann gekkst við því að hafa hótað að birta af henni nektarmyndir.
Í myndbandinu þykist Þórdís vera þjónustufulltrúi, hjá krísulínunni Sjomlar.
„Vandamálið er að þú beittir kærustuna þína andlegu ofbeldi, og hótaðir að brjóta á henni kynferðislega, sem hélt henni í andlegri gíslingu árum saman og nú er hún búin að segja frá því opinberlega, ég skil. Og hver voru þín viðbrögð við þessu Fróði?“ spyr Þórdís.
„Þú skrifaðir dulbúið afsökunarbréf þar sem þú sagðist axla ábyrgð á gjörðum þínum en gerðir hana jafnframt samábyrga með því að segja að framkoma yfkkar beggja hafi ekki verið til fyrirmyndar ég skil,“ segir Þórdís.
„Og svo fékkst þú þráhyggju akkúrat, sem fékk þig til að áreita, hóta og kúga hana í langan tíma, ég skil. Þannig að þú ert í rauninni fórnarlambið en ekki hún? Einmitt. Takk fyrir þetta Fróði, við skulum fletta þér upp. Þarna ertu, ahh ókei, ég sé, þig vantar grunnstillingarnar fyrir iðrun og sjálfsábyrgð, já einmitt. Það gæti komið sér vel núna. Ég gæti sent þér þær snöggvast Fróði, en ég þarf að vara þig við því, þú ert með narsissíska stýrikerfið og þessar stillingar virka oft illa með því.“
Restina af myndbandinu má horfa á hér að neðan: