Baráttukonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir gerir stólpagrín að Helga Magnúsi Gunnarsson vararíkissaksóknara í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum.
Í myndbandinu er Þórdís í hlutverki símsvara hjá þjónustuborði „Sjomlalínunnar“, en þar hringir inn „Hlöðver Magnús“, sem er óumdeilanlega byggður á Helga Magnúsi.
Líkt og alþjóð veit komst Helgi Magnús í hann krappann þegar hann skrifaði á Facebook að auðvitað myndu hælisleitendur ljúga til um kynhneigð sína, og spurði hvort „það væri ekki nóg af hommum á Íslandi“. Í kjölfarið hafa Samtökin 78 kært hann fyrir ummælin.
Líkt og áður segir tekur Þórdís þetta fyrir í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum, en sjón er sögu ríkari.