Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, vill að fyrirkomulag ferðagjafarinnar, sem allir Íslendingar, 18 ára og eldri, fengu í sumar verði víkkað út.
Þorbjörg vakti athygli á þessu í umræðum um störf þingsins í gær. Eins og greint hefur verið frá ætlar ríkisstjórnin að framlengja gildistíma ferðagjafarinnar og fagnar Þorbjörg þeirri ákvörðun.
„Mér fannst þessi hugmynd stjórnarinnar á sínum tíma bæði skynsamleg og frumleg, en hún hefði mátt vera kraftmeiri. Við hefðum viljað sjá stærri skref í þessum efnum núna og ekki bara að fara þá leið að lengja tímabilið sem hægt er að nota þessa gjöf heldur að hækka upphæðina upp í 15.000 krónur,“ sagði hún og bætti við að gildissvið hennar ætti að breikka þannig að hægt væri að nota hana sem einskonar menningargjöf.
„Við viljum að ferðagjöfin geti staðið undir því að flokkast sem fjölskyldugjöf þannig að þessa gjöf fái allir sem eru 12 ára og eldri. Þannig væri um góðan stuðning við fjölskyldur landsins að ræða.“
Þorbjörg benti á að þarna væri komin raunveruleg innspýting til fyrirtækja og rekstraraðila í greinum sem hafa orðið fyrir þungu höggi. Höggi sem er orðið þyngra og lengra en margir sáu fyrir sér þegar veiran fór að láta á sér kræla.
„Um 25.000 manns eru atvinnulausir eða á hlutaatvinnuleysisbótum. Þessar tölur geta að líkindum orðið enn hærri í lok árs. Ferðaþjónustan, lista- og menningargeirinn hafa orðið fyrir þyngri áföllum en flestar aðrar greinar þannig að ný ferða-, lista- og menningargjöf að þessari upphæð mun hafa jákvæð efnahagsleg áhrif. Það er einhver falleg hugsun og falleg hugmyndafræði í þessari leið til að mæta áfalli að gera þetta núna í aðdraganda jóla. Við viljum að gjöfin gildi fram á haustið 2021. Þannig örvum við þessar greinar og færum fólki tækifæri til að gera sér glaðan dag í lok þessa árs. Þetta mun reynast þýðingarmikið fyrir ferðaþjónustuna og fyrir menningar- og listastarf í landinu.“