Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, húðskammaði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra á Alþingi í dag. Sagði hún undir liðnum störf þingsins að Bjarni hafi fallið á eigin prófi með því að vilja setja hundruð milljóna króna kostnað við ný ráðuneyti í samhengi við öll útgjöld ríkisins.
„Hans verkefni er að halda á veski skattgreiðenda og fara skynsamlega með fjármuni almennings. Að baki fjölgun ráðuneyta býr auðvitað engin knýjandi þörf, engin önnur þörf en sú að fjölga ráðherrum svo valdahlutföllin milli stjórnarflokkanna haldist,“ sagði hún.
„Hérna þarf að segja hið augljósa, sem er að fyrir þetta borga skattgreiðendur. Almenningur og fyrirtækin í landinu taka reikninginn og þessir fjármunir fara ekki í önnur verkefni.“
Þá nefndi hún fleiri dæmi:
„Annað dæmi er það hvernig ráðuneytin blása út og að á síðasta kjörtímabili stofnaði þessi ríkisstjórn 248 nýjar nefndir til viðbótar við allar þær sem þegar voru starfandi. Var knýjandi þörf á þeim öllum? Síðan eru dæmi um það þar sem þörfin er sannarlega knýjandi.“
Benti hún þá á tölvupósta frá öryrkjum sem geta ekki haldið jól.
„Tölvupósthólf þingmanna eru að fyllast af bréfum frá fólki sem ekki sér fyrir sér að geta haldið jól. Ríkisstjórnin virðist ekki ætla að veita öryrkjum sérstaka uppbót fyrir jólin og bréfin endurspegla sorg vegna þessa. Að sjá til þess að enginn líði sáran skort, það er verkefnið sem ríkinu ber að sinna og það er samhengið sem fjármálaráðherra sjálfur lýsti eftir og það er dómurinn um forgangsröðun ríkisstjórnarinnar.“