„Það er ekki í lagi með Sjálfstæðisflokkinn. Talandi um argasta íhald,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara Connect og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á Twitter-síðu sinni.
Þorbjörg deilir þar skjáskoti af frétt Morgunblaðsins í dag þar sem greint er frá því að allt stefni í oddvitaslag hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi.
Herma heimildir blaðsins að bæði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Haraldur Benediktsson sækist eftir því að leiða lista flokksins fyrir kosningarnar í haust.
Haraldur er oddviti flokksins í kjördæminu en Þórdís Kolbrún varaformaður flokksins og auk þess ráðherra.
Þorbjörg Helga styður augljóslega Þórdísi Kolbrúnu og segir: „Þórdís Kolbrún er ekki bara gríðarlega sterkur hugmyndafræðingur heldur skref í rétta átt fyrir XD.“
Þorbjörg Helga var sem kunnugt er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á árunum 2006 til 2014 og þekkir því til innan flokksins.
Það er ekki í lagi með Sjálfstæðisflokkinn. Talandi um argasta íhald. Þórdís Kolbrún er ekki bara gríðarlega sterkur hugmyndafræðingur heldur skref í rétta átt fyrir XD. #sad pic.twitter.com/1F52LtrY9W
— Thorbjorg Helga (@thorbjorghelga) February 12, 2021