Þórarinn Ævarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi og eigandi Spaðans, fer fyrir fjárfestahóp sem falast eftir því að kaupa rekstur Domino‘s á Íslandi.
Greint er frá þessu í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, í dag.
Heimildir Markaðarins herma að viðskiptafélagar hans í Spaðanum, Jón Pálmason, sem jafnframt er annar eigenda IKEA á Íslandi, og Guðni Rafn Eiríksson, eigandi Skakkaturns, umboðsaðila Apple á Íslandi, séu í fjárfestahópi Þórarins
Aðrir fjárfestar hafa einnig falast eftir rekstri Domino‘s hér á landi, þar á meðal Alfa, sem rekur sjö milljarða framtakssjóð. Í frétt Markaðarins segir einnig að hópur sem fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt fer fyrir hafi einnig gert tilboð, en Birgir Þór hefur áður komið að rekstri pizzakeðjunnar hér á landi. Í hópnum eru einnig Birgir Örn Birgisson, núverandi framkvæmdastjóri Domino‘s á Íslandi, og Skeljungur. Erlendir fjárfestar eru einnig sagðir áhugasamir.
Þórarinn var framkvæmdastjóri Domino's fyrir margt löngu, en í viðtölum við hann hefur hann lýst því hvernig hann var upphafsmaðurinn að baki Megaviku Domino‘s, einni farsælustu markaðsherferð landsins.