Þórarinn Ævarsson, áður kenndur við IKEA nú Spaðann, segir það harkalegt að túlka læk Benedikts Bogasonar forseta hæstaréttar á Facebook sem gerendameðvirkni. Þórarinn lét þessi orð falla í fréttum vikunnar í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, segir að hann hafi ekki brotið reglur um varkárni með því að setja Læk við færslu Helga Jóhannessonar lögmanns sem baðst afsökunar á hegðun sinni á Facebook. Helgi hætti sem yfirlögfræðingur Landsvirkjunar í lok október eftir að hafa fengið áminningu vegna hegðunar í starfi.
„Hann er fullur eftirsjár og finnst það ömurlegt. Menn læka við það og segja að það þeir séu með því að lýsa yfir stuðningi við að hann stigi fram og viðurkenni þetta. Svo eru sumir sem segja að það sé gerendameðvirkni, mér finnst það dálítið harkalegt,“ segir Þórarinn.
Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt forseta Hæstaréttar er Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir lögmaður sem sagði hann gerendameðvirkan, spurði hvort hann ætlaði þá ekki að fara að læka færslur hjá þolendum.
Þórarinn tekur svo annað dæmi, þá Sólveigu Önnu Jónsdóttur sem sakaði Magnús Norðdahl, lögfræðing ASÍ, sem setti athugasemd við færslu manns sem sagður er hafa hótað Sólveigu Önnu. „Hann kveður vin sinn til 27 ára sem var rekinn frá Eflingu fyrir meinta hótun, ég hef ekki enn séð neina sönnun fyrir þeirri hótun en gefum okkur að hún sé sönn, og hann segir „Leiðinlegar fréttir kæri vinur“, eftir 27 ár,“ segir Þórarinn. „Sólveig Anna segir að þá sé ASÍ vanhæft til að fjalla um kynferðisbrot eftir þetta.“
Þórarinn er harðorður: „Er búið að setja gag order á alla þjóðina? Það má ekki segja neinn andskotans hlut án þess að það sé tekið og túlkað á versta veg,“ segir hann.
„Ég hef gaman af mannkynssögunni, það er gjarnan talað um McCarthyismann í Bandaríkjunum sem svartan blett. Þá voru allir sem voru ekki lengst til hægri stimplaðir kommúnistar. Það var rosalegur Cancel-kúltúr. Þarna finnst mér við vera komin á sama stað. Ef þú ert ekki algjörlega sammála mér þá ætla ég að henda þér út af vinalistanum á Facebook.“