Þórarinn Ævarsson hefur sagt upp sem framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi en vildi annars lítið tjá sig að svo stöddu. Hann sagði formlega tilkynningu væntanlega á næstunni og að hann hafi tilkynnt starfsfólki sínu um ákvörðunina í morgun.
Þórarinn segir í samtali við Mbl.is að hann reikni með að vinna út mánuðinn og að von sé á áðurnefndri tilkynningu í hádeginu í dag.
Þórarinn hefur starfað sem framkvæmdastjóri IKEA frá árinu 2006 og hafði áður starfað sem bakarameistari og yfirbakari hjá Sveini bakara og sem verslunar-, framkvæmda- og rekstrarstjóri hjá Domino‘s á Íslandi og í Danmörku, að því er kemur fram í frétt Vísis.
Hann hefur verið gjarn á að gagnrýna verðlag á íslenskum veitingastöðum og t.a.m. bent þar á mikið misræmi milli framleiðslukostnaðar og sölukostnaðar.