Þórarinn Ævarsson, eigandi Spaðans og fyrrverandi framkvæmdastjóri IKEA, er í ítarlegu viðtali í ViðskiptaMogganum í dag. Þórarinn hefur marga fjöruna sopið í viðskiptalífinu hér á landi en hann kom meðal annars að stofnun Domino‘s hér á landi og var framkvæmdastjóri um nokkurra ára skeið.
Þórarinn hafði unnið að því að koma Domino‘s á fót í Danmörku en árið 2000 var hann beðinn um að taka við sem framkvæmdastjóri á Íslandi.
„Þá var búið að opna fjóra staði í viðbót og þeir orðnir alls sjö. Salan var gríðarleg en kostnaðurinn var algjörlega farinn úr böndunum. Það var bullandi tap og í sjálfu sér stefndi fyrirtækið í gjaldþrot,“ segir Þórarinn í viðtalinu. Hann lagðist í greiningu í kjölfarið og sá að starfsmannaveltan var mikil, eða 300%.
„Þarna voru 300 starfsmenn að vinna sem þýddi 900 ráðningar á ári! Það er ekki hægt að reka fyrirtæki við þær aðstæður,“ segir hann og nefnir að afleiðingar þess að vera með svo mikla starfsmannaveltu séu öll mistökin sem nýir starfsmenn gera. Hann lagðist í frekari greiningarvinnu og sá að menn voru að borga lágmarkslaun sem hann telur að séu líka mistök. Úr varð að hann hækkaði laun því auðvelt er að sækja starfsfólk sem vinnur á lágmarkslaunum. „Það fer annað um leið og því er boðið eitthvað betra,“ segir hann.
Úr varð að hann lagði til við stjórnina að snjallt væri að hækka launin, sérstaklega hjá lykilmönnum með það að markmiði að lækka launakostnaðinn. „Þeir höfðu það mikla trú á mér, þessir eigendur, að þeir samþykktu það. Ef ég man rétt hækkaði ég laun um 30% hjá lykilmönnum og launakostnaður lækkaði um 20%,“ segir hann. Afleiðingarnar voru þær að starfsmannaveltan fór úr 300% niður í 80% fyrsta árið.
Í viðtalinu kemur Þórarinn víða við og ræðir meðal annars framtíðaráform Spaðans, árin hjá IKEA auk þess að segja fróðlegar sögur af árunum hjá Dominos.